Tilveran.is er afþreyingarsíða öllum til skemmtunar

Við hvetjum fólk til að senda inn uppástungur um tengla

Við getum ekki tekið ábyrgð á innihaldi annarra vefsíða. Aftur á móti leitast tilveran.is eftir því að hafa ekki hlekki á eftirfarandi: klám eða annað ólöglegt efni, ærumeiðingar og einelti, rasisma, ofbeldi, hvatningu til ofbeldis og fleira varhugvert efni.

Hins vegar er það ekki endilega illa séð að birta hlekki á grín með áður upptöldum þemum, svo lengi sem það er innan skynsamlegra marka, viðurkenndar og löglegar íþróttir sem kunna að teljast ofbeldisfullar eða harkalega gagnrýni á pólitískar eða opinberar fígúrur, sérstaklega ef um er að ræða spillingarmál.

Tilveran.is er forrituð af Rökkva Vésteinssyni, tölvunarfræðingi og vefforritara, í aspx .NET með C# - Hún notar mikið af javascript og ajax til að hámarka hraða og þægindi fyrir notendur. Útlitið er aðkeypt og aðlagað.

Vinsamlegast hafið samband á tilveran@tilveran.is ef:

- Ykkur misbýður eitthvað á síðunni eða teljið að það samræmist ekki þeirri stefnu sem hér er lýst

- Þið verðið vör við óvirka hlekki

- Heiti hlekksins passar ekki við það sem hann vísar á

- Innihald síðunnar sem hlekkur vísar í hefur breyst í eitthvað annað en upphaflega var hlekkjað á

- Þið yfir höfuð finnið einhvern galla á síðunni (t.d. eitthvað sem virkar ekki)

- Þið viljið koma með uppástungur og ábendingar um hvernig síðan gæti verið betri


Auglýsendur:

Auglýsingar eru til sölu. Við erum opnir fyrir vöruskiptasamningum gegn auglýsingum. Athugið hins vegar að við viljum hafa síðuna fallega og þægilega fyrir notendur og viljum ekki hafa bannera, hreyfimyndir, blikkandi ófögnuð eða myndir í æpandi litum sem ekki passa á síðuna eða yfirleitt neitt sem truflar notandann. Auglýsingar verða að vera kyrrmyndir, linkar, texti eða að við setjum video í videogluggann á síðunni. Einnig er hægt að auglýsa á "tilveran.is" borðanum sem kemur efst á síðunni þegar maður fer inn á tengil.

Sendið fyrirspurnir á tilveran@tilveran.is

Sjá auglýsingasíðuna


123.is
Fullkomið blogg kerfi. Settu inn myndaalbúm og skrár á netið.

Uppistand.is
Pantaðu uppistandara til að skemmta.
Blogg gáttin
Blogg gáttin
Vísindin.is
Íslensk síða um vísindi.